Ævintýra vetrarferð til Mjóafjarðar
Ef þú ert í leit að ævintýri þar sem upplifunin er spennandi ferðamáti, stórfenglegt landslag, ósnortin náttúra, fjölbreytt dýralíf, friðsæld og fegurð og síðast en ekki síst afslöppun í umhverfi sem er laust við áreiti nútímans þá er Ævintýra vetrarferð til Mjóafjarðar það sem þú þarft.
Ferðin er bókanleg á tímabilinu nóvember til apríl. Áætlanabáturinn Björgvin siglir milli Mjóafjarðar og Norðfjarðar.
Upphaf og endir ferðar er á bæjarbryggjunni á Norðfirði.
Brottför frá Mjóafirði
Koma til 
Norðfjarðar
				Brottför frá Norðfirði
Koma til  
Mjóafjarðar
				Mánudagur
10:00
11:00
12:30
13:30
Fimmtudagur
10:00
11:00
12:30
13:30
									Lengd dvalar í bústað getur verið frá fimmtudegi til mánudags(4 nætur) eða frá mánudegi til fimmtudags(3 nætur) og hægt að semja um lengri dvöl.
Verð frá 66.000 ISK / 465€
				Verð frá 66.000 ISK / 465€
Innifalið í dvöl
- Bátsferð til og frá Mjóafirði
 - Gisting í bústað fyrir allt að fjóra
 - Aðgangur að heitum potti
 - Afnot af fjallahjólum
 - Heimsókn í fjárhúsið
 - Friðsæld og fegurð Mjóafjarðar
 
*Vinsamlegast athugið að matur og drykkir eru ekki innifaldir í verði. Það er á ábyrgð gesta að hafa það með sér.